Segir málflutning Samfylkingarinnar með ólíkindum

Hildur Sverrisdóttir þingmaður sjálfstæðisflokksins.
Hildur Sverrisdóttir þingmaður sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi Kristrúnu Frostadóttir formann Samfylkingarinnar harðlega í ræðu sinni á Alþingi í dag. Til umræðu var munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM.

Í ræðu sinni sagði Hildur það hafa verið ótrúlegt að hlusta á formann Samfylkingarinnar í Kastljósi í gærkvöldi, en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra og Kristrún Frostadóttir mættust í Kastljósi í gær og ræddu fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM.

„Í aðra röndina talaði hún um sjálfstæði Bankasýslunnar, en í hina lýsti hún mikilli furðu yfir því að fjármálaráðherra hefði ekki stigið sjálf fyrir fram inn í kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Sú afstaða formannsins stenst enga skoðun herra forseti,“ sagði Hildur.

Ekki gert ráð fyrir samskiptum við ráðherra í lögum

Hildur fjallaði meðal annars um eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki, sem nær til þeirra fyrirtækja sem Bankasýsla ríkisins hefur umsjón með. 

Þar segir: „Meginverkefni Bankasýslu ríkisins er að sjá um samskipti ríkisins við fjármálafyrirtæki sem ríkið á eignarhluti í og tengjast eigendahlutverki þess. Þau samskipti eiga að meginstefnu til að fara fram í gegnum stjórnir fjármálafyrirtækjanna.

Vegna armslengdarsjónarmiða laganna er ekki gert ráð fyrir að þessir aðilar eigi bein samskipti við fjármála- og efnahagsráðuneytið eða ráðherra vegna ákvarðana er snúa að eignarhaldi ríkisins eða rekstri félaganna.“

Landsbankinn ekki upplýst Bankasýsluna formlega

Þá sagði Hildur upplýsingar um fyrirhuguð kaup vera lögum samkvæmt innherjaupplýsingar. 

Í Kastljósi í gær sagði Kristrún að hundruð opinberra starfsmanna hefðu átt að getað upplýst fjármálaráðherra nægilega um fyrirhuguð viðskipti til að hún stigi inn og gerði eitthvað í þeim.

Hildur benti á að bankaráð Landsbankans hafði ekki einu sinni upplýst Bankasýsluna formlega um viðskiptin og það þrátt fyrir að í fyrrgreindri eigendastefnu segi að fjármálafyrirtæki skulu bera allar meiri háttar aðgerðir undir hana, sem kaup að andvirði tæplega 30.000 millj. kr. auðvitað eru.

Þá ítrekaði Hildur að vegna armslengdarsjónarmiða er ekki gert ráð fyrir beinum samskiptum við fjármála- og efnahagsráðuneytið eða ráðherra vegna ákvarðana er snúa að rekstri félaganna.

Samfylkingunni snúist hugur um þetta mál eins og annað

Hildur segir að formaður Samfylkingarinnar taldi það ekki kjarna máls að ríkisbanki væri að soga til sín og ríkisvæða tryggingafélag á almennum markaði.

Aðalatriðið væri auðvitað „ákvarðanatökuferlið” eins og hún orðaði það, segir Hildur. Þá bætir hún við að ákvarðanatökuferlið hafi verið upp á tíu hjá fjármálaráðherra. 

Í Kastljósi gagnrýndi Kristrún að  Bankasýslan, sem Samfylkingin kom á fót, hefði ekki verið lögð niður innan fimm ára frá stofnun líkt og til stóð. 

Hildur benti á að Kristrún hefði ekki nefnt að Bjarni Benediktsson, þá fjármálaráðherra, hefði lagt til niðurlagningu stofnunarinnar með frumvarpi fyrir níu árum síðan. Við það tilefni kvaðst Össur Skarphéðinsson, þingmaður og fyrrum formaður Samfylkingarinnar, vera mótfallinn því.

„Samfylkingunni hefur því snúist hugur um þetta mál og það er reyndar alls ekki einsdæmi um þessar mundir,“ bætti Hildur við. 

Kristrún mótfallin því að selja Landsbankann

Í ræði sinni benti Hildur einnig á að fimm ára líftíminn miðaðist við að búið yrði að losa um eignarhald ríkisins í fjármálafyrirtækjum, þar á meðal Landsbankanum.

„En formaður Samfylkingarinnar kveðst hins vegar algjörlega mótfallin því að selja Landsbankann. Formaðurinn fékkst hins vegar ekki til að svara hvað henni fyndist um fyrirhuguð kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Enda væri það, líkt og áður segir að áliti formannsins, ekki kjarni máls. “

Samfylkingin kastar ryki í augu almennings

Að lokum lýsti Hildur vonbrigðum sínum með málflutning Samfylkingarinnar í þessu máli. Hún sagði fjármálaráðherra ekki hafa gert neitt nema hið rétta í stöðunni og að reyna að halda öðru fram væri aum tilraun til að slá ryki í augu almennings.

„Í þessu máli er fyrirkomulag ráðherra algerlega skýrt. Vegna armslengdarsjónarmiða er ekki gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins eigi bein samskipti við fjármálaráðherra vegna ákvarðana er snúa að rekstri félaganna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert