Gekk eins og í sögu í Keflavík

Röskun var á 10 flugferðum í dag hjá Play.
Röskun var á 10 flugferðum í dag hjá Play. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einhver röskun var á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli í dag vegna veðurs.

Flugfélagið Play flýtti flestum brottförum sínum í morgun og komum frá Evrópu var seinkað síðdegis. Ekki þurfti að aflýsa neinni ferð.

Plan sem gekk upp

„Þetta var planið sem lagt var upp með í byrjun dags, að flýta brottförum og seinka Evrópuflugi, og það gekk bara eins og í sögu,“ seg­ir Birg­ir Ol­geirs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Play, í sam­tali við mbl.is.

Varðandi framhaldið segir Birgir raskanirnar í dag ekki hafa neina keðjuverkun. Flugáætlun félagsins er því í góðum málum og eru allar ferðir á áætlun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert