Daði vanhæfur til að dæma í hryðjuverkamálinu

Daði Kristjánsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, er vanhæfur til að …
Daði Kristjánsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, er vanhæfur til að dæma í hryðjuverkamálinu svokallaða. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Daði Kristjánsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, sé vanhæfur til að dæma í hryðjuverkamálinu svokallaða og er honum því gert að víkja.

Rúv greinir frá.

Í skriflegu svari til Rúv staðfestir Karl Ingi Vilbergsson saksóknari þetta.

Skaut málinu til Landsréttar

Lands­rétt­ur úr­sk­urðaði þann 23. októ­ber að héraðsdómi bæri að taka hryðjuverkamálið til efn­is­legr­ar meðferðar og krafðist þá Karl þess að Daði myndi víkja frá í málinu.

Var sú krafa sett fram af sak­sókn­ara vegna um­mæla dóm­ara í úr­sk­urði frá í októ­ber þar sem mál­inu var vísað frá.

Saksóknari skaut málinu til Landsréttar sem hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að Daði sé vanhæfur til að dæma í málinu.

Landsréttur metur það sem svo að ummæli Daða við frávísun málsins hafi gefið það til kynna að saksóknari hefði átt að fella niður málið þar sem það væri ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis.

Það væri því óhjákvæmilegt að Daði þyrfti að víkja sem dómari í málinu, að er kemur fram í frétt Rúv.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert