Sjö handteknir í tengslum við skotárásina

Lögreglan telur sig hafa handtekið alla sem komu að árásinni …
Lögreglan telur sig hafa handtekið alla sem komu að árásinni í Úlfarsárdal. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið sjö í tengslum við skotárásina sem átti sér stað við fjölbýli í Úlfarsárdal í nótt. 

Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. 

Að sögn Gríms telur lögreglan að í kjölfar sjöundu handtökunnar hafi allir þeir sem komi að árásinni verið handteknir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert