Gæti hafa verið stærsti skjálftinn í rúmlega ár

Horft yfir Bárðarbungu úr lofti. Hún minnti á sig með …
Horft yfir Bárðarbungu úr lofti. Hún minnti á sig með sterkum skjálfta á miðvikudag. mbl.is/RAX

Jarðskjálftinn sem varð í Bárðarbungu síðdegis á miðvikudag, og talinn var af stærðinni 4,7, virðist hafa verið 4,9 að stærð.

Nýjustu mælingar jarðvísindamanna Veðurstofunnar benda til þessa.

Ekki hefur mælst jafn stór jarðskjálfti í eldstöðinni frá því í júlí í fyrra, þegar skjálfti sömu stærðar reið yfir.

Skjálfti af stærðinni 4,8 varð svo í febrúar á þessu ári.

Annað virkasta eldstöðvakerfið

Eldstöðvakerfið hefur verið mjög virkt síðustu tólf þúsund ár. Hafa orðið þar að minnsta kosti 26 eldgos frá landnámi. Er kerfið talið það annað virkasta á landinu, á eftir Grímsvötnum.

Síðasta gos í Bárðarbungukerfinu var sprungugosið í Holuhrauni, sem hófst í ágúst árið 2014 og lauk í febrúar rúmu hálfu ári síðar.

Ljóst þykir að undir niðri sé kvika fyrir löngu farin að safnast fyrir á ný, eins og fram kom í máli Páls Einarssonar, jarðeðlis­fræðing­s og pró­fess­ors emer­it­us, í samtali við mbl.is á síðasta ári.

Kvikusöfnuninni fylg­ir landris og skjálfta­virkni, en ná­kvæm­lega hvenær það leiðir til goss er óvíst.

„Þetta er þó merki um það að virkn­in i Bárðarbungu er í gangi ennþá, og því full ástæða til að hafa auga með þess­ari öfl­ug­ustu eld­stöð lands­ins,“ sagði Páll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert