Yngsti starfsmaður Dýralæknastöðvarinnar í Grafarvogi

Hin sextán vikna gamla Ynja.
Hin sextán vikna gamla Ynja. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hin sextán vikna gamla Ynja er sérstakur aðstoðarmaður dýralæknanna á Dýralæknamiðstöðinni í Grafarvogi þar sem hún spígsporar um á meðan eigandi hennar sinnir starfi sínu á stöðinni.

Líkt og aðrir hundar þarf Ynja þó að líta til læknis af og til, en á myndinni sést Úndína Ýr Þorgrímsdóttir dýralæknir framkvæma skoðun á aðstoðarmanninum ferfætta sem stóðst skoðunina með stakri prýði.

Ynja stóðst skoðunina með prýði.
Ynja stóðst skoðunina með prýði. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert