Beina ábendingunum til borgarinnar

Til­kynnt var í síðustu viku að innviðaráðuneytið og Reykja­vík­ur­borg hefðu …
Til­kynnt var í síðustu viku að innviðaráðuneytið og Reykja­vík­ur­borg hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um að hefja jarðvegs­fram­kvæmd­ir og þar með und­ir­bún­ing upp­bygg­ing­ar í Nýja Skerjaf­irði. mbl.is/Árni Sæberg

Þingflokkur og sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar leggja áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur skapi öryggi fyrir innanlands- og millilandaflug, mæti þörfum sjúkraflugs og að brúin á milli landsbyggðar og höfuðborgar verði áfram í Vatnsmýrinni, þar til annar jafngóður eða betri kostur finnst.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu Framsóknar vegna flugvallarins. 

Til­kynnt var í síðustu viku að innviðaráðuneytið og Reykja­vík­ur­borg hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um að hefja jarðvegs­fram­kvæmd­ir og þar með und­ir­bún­ing upp­bygg­ing­ar í Nýja Skerjaf­irði. Hef­ur málið verið til um­fjöll­un­ar síðustu daga.

Í yfirlýsingu flokksins segir að þingflokkur og sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar sátu kynningarfund varðandi niðurstöður skýrslunnar. 

„Hópurinn ítrekar afstöðu sína um að ekki muni rísa byggð í Vatnsmýrinni sem mun hafa áhrif á flug- og rekstraröryggi flugvallarins. Þannig er tryggt að samkomulag ríkis og borgar frá 2019 um að tryggja flug- og rekstraröryggi á Reykjavíkurflugvelli haldi næstu 20-25 árin,“ segir í yfirlýsingunni. 

Því beinir hópurinn til borgarinnar að vinna eftir þeim ábendingum sem koma fram í niðurstöðu skýrslu starfshóps um áhrif nýrrar byggðar í Skerjafirði á flug- og rekstraröryggi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert