Öll starfsemi HÍ liggur niðri

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur unnið að hreinsun í byggingum HÍ síðan …
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur unnið að hreinsun í byggingum HÍ síðan í nótt. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Öll starfsemi Háskóla Íslands á Háskólatorgi, í Gimli, Lögbergi, Árnagarði og í Aðalbyggingu mun liggja niðri að minnsta kosti til hádegis í dag vegna gríðarlegs vatnstjóns sem orðið hefur í byggingum Háskólans.

Þetta á við um alla starfsemi, þ.m.t. kennslu, rannsóknir og þjónustu, að því er segir í tilkynningu frá HÍ.

Nánari upplýsingar verða veittar um leið og fram vindur en verið er að dæla vatni úr húsnæði skólans. Fram hefur komið í fréttum að rof hafi komið á stóra kaldavatnsæð í Vesturbæ Reykjavíkur í nótt. Ljóst er að mikið verk er fram undan við að koma aðstöðunni í samt horf, segir í tilkynningunni. 

Mikill vatnsleki varð í byggingum Háskóla Íslands eftir að vatnsæð …
Mikill vatnsleki varð í byggingum Háskóla Íslands eftir að vatnsæð fór í sundur við Suðurgötu. Kort/mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert