Gæsluvarðhald yfir Sveini Gesti framlengt

Sveinn Gestur við þingfestingu málsins.
Sveinn Gestur við þingfestingu málsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gæsluvarðhald yfir Sveini Gesti Tryggvasyni, sem ákærður er fyrir að hafa ráðið Arnari Jónssyni Aspar bana með stórfelldri líkamsárás í Mosfellsdal 7. júní síðastliðinn, hefur verið framlengt um fjórar vikur og verður Sveinn Gestur því í varðhaldi til 23. nóvember næstkomandi.

Krafa um framlengingu var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag kl. 15.

Aðalmeðferð í málinu verður 21. til 23. nóvember. Héraðssaksak­sókn­ari ákærði Svein Gest fyr­ir brot á 218. grein hegn­ing­ar­laga, grein sem fjall­ar um stór­fellda lík­ams­árás. Há­marks refs­ing fyr­ir brot á þeirri grein er 16 ára fang­elsi, hljót­ist bani af árás­inni.

Aðstandendur Arnars Jónssonar Aspar hafa kært til ríkissaksóknara þá ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður rannsókn á hendur þeim sem fóru með Sveini Gesti að Æsustöðum í Mosfellsdal, þar sem Arnar lést. Alls voru sex manns upphaflega handteknir vegna málsins, fimm karlar og ein kona, en einungis Sveinn Gestur hefur verið ákærður.

Í kæru aðstandenda eru færð rök fyrir því að fleiri en Sveinn Gestur einn hafi gerst sekir um hlutdeild í líkamsárásinni sem talin er hafa leitt til þess að Arnar lést.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka