Kólnaði um hálfa gráðu

Margir söfnuðust saman við Háskóla Íslands til að fylgjast með …
Margir söfnuðust saman við Háskóla Íslands til að fylgjast með sólmyrkvanum.

Margir kunna að hafa tekið eftir kaldara andrúmslofti í kjölfar sólmyrkvans. Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands kólnaði andrúmsloftið um hálfa gráðu á celsius kvarða í Reykjavík vegna myrkvans.

Er þá miðað við tölur frá opinberum mæli Veðurstofunnar fyrir utan höfuðstöðvar hennar við Bústaðaveg.

Sólmyrkvinn í hámarki í Reykjavík.
Sólmyrkvinn í hámarki í Reykjavík. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert