Hringdu skelfingu lostnir í lögreglu

Svona var sólmyrkvinn séð frá aðalbyggingu Háskóla Íslands í dag.
Svona var sólmyrkvinn séð frá aðalbyggingu Háskóla Íslands í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Margir hringdu skelfingu lostnir í lögregluna í Hafnarfirði á tíunda tímanum í morgun. Í símanum voru íbúar bæjarins en þeir hafa vanist því að horfa á móti sól. Á örskömmum tíma dró fyrir sólu og því eru íbúar þessa hýra bæjarfélags alls ekki vanir.

Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þess ber að geta að líklega er aðeins um að ræða spaug, grín og gaman og því ætti að taka færsluna hæfilega alvarlega. 

„Ekki er enn ljóst hvað olli þessu skammdegi en rannsókn málsins stendur enn yfir. Hafa allir starfsmenn rannsóknardeildarinnar unnið hörðum höndum við að reyna upplýsa málið en ekki er talið að um mannfall sé að ræða. Málið er litið mjög alvarlegum augum enda á það sér ekkert fordæmi að sólin láti ekki sjá sig hér í Hafnarfirði. Frekari upplýsinga er að vænta vonandi fljótlega,“ segir í færslu lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert