„Ég er enn með gæsahúð“

Ásatrúarmenn héldu sérstaka sólmyrkvaathöfn á Öskjuhlíð í morgun og að henni lokinni var fyrsta skóflustungan tekin á lóð Ásatrúarfélagsins en þar mun rísa fyrsta höfuðhof álfunnar í þúsund ár. 

Pöntuðu veðrið sérstaklega hjá guðunum

„Þetta var mögnuð stund og við eignum okkur alfarið heiðurinn af þessu góða veðri," segir Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði kíminn að athöfninni lokinni. „Við tókum guðina á teppið og pöntuðum þetta veður sérstaklega."

Að sögn Hilmars Arnar mættu yfir 300 manns í Öskjuhlíðina, flestir með sólmyrkvagleraugu eða önnur tæki og tól til sólmyrkvaskoðunar. „Margir voru með sótað gler og notuðu brotna geisladiska til að horfa á sólmyrkvann og höfðu greinilega gúglað ýmsar aðferðir sem ég hef ekki séð áður," segir Hilmar Örn. 

Tímasetning sólmyrkvans er hlaðin merkingu

Sólmyrkvaathöfnin hófst kl 08.38 við upphaf sólmyrkvans og þá voru mynduð táknræn vébönd, kveikt var á kertum í höfuðáttum og staðarvættum blótað með smjöri og bjór sem að sögn Hilmars Arnar var að sjálfsögðu íslenskur. „Þegar myrkvinn náði hámarki var kveiktur eldur á staðnum þar sem hofið rís, bumbur voru barðar og sigri ljóssins var fagnað með kveðskap og tónlist," segir Hilmar Örn en hann segir margar fallegar sólartilvísanir í Eddukvæðum sem sungið var upp úr. „Þessi tímasetning er hlaðin merkingu og er afskaplega merkileg," útskýrir Hilmar Örn. „Sól og tungl í samstöðu að fara inn í hrútsmerkið. Þetta er afskaplega táknræn ný byrjun og mjög merkileg stjörnuspekilega séð."

Að lokinni sólmyrkvaathöfninni tók Dagur B.Eggertsson borgarstjóri fyrstu skóflustunguna að hinu nýja hofi Ásatrúarmanna og svæðið og samkoman var helguð.  „Ég er enn með gæsahúð," segir Hilmar Örn um sólmyrkvann og athöfnina í morgun sem hafði farið framar öllum vonum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert