Kyndir undir verðbólgu

Vilhjálmur segir að farið hafi að hægja á atvinnulífinu s.l. …
Vilhjálmur segir að farið hafi að hægja á atvinnulífinu s.l. sumar og að stöðnunin haldi áfram. mbl.is/Ómar

„Það er orðin stefnubreyting með fjárlagafrumvarpinu. Nú á að auka útgjöld með nýjum sköttum á atvinnulífið. Boðskapurinn frá ríkisstjórninni er sá að nú sé hægt að byrja veisluna með útgjöldum til margvíslegra hluta á kostnað atvinnulífsins.“

Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um bandorminn, breytingar á lögum sem varða tekjuhlið fjárlaga, sem kynntur var fyrir helgi.

Vilhjálmur segir að skattahækkanirnar þrengi að svigrúmi fyrirtækja til að hækka laun 1. febrúar í samræmi við kjarasamninga.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert