Syrgja fyrrverandi áróðursmeistara

Kim Jong-un og fleiri háttsettir embættismenn við kistu áróðursmeistarans.
Kim Jong-un og fleiri háttsettir embættismenn við kistu áróðursmeistarans. AFP

Fyrrverandi áróðursmeistari Norður-Kóreu, Kim Ki Nam, er látinn.

Ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu greindi frá þessu og birti ljósmyndir af leiðtoga landsins, Kim Jong-un, við kistu hans. 

Kim Ki Nam var 94 ára þegar hann lést í gær. Hann er þekktur fyrir að hafa stjórnað áróðursdeild norðurkóreskra stjórnvalda. Á áttunda áratugnum stjórnaði hann opinberu dagblaði stjórnvalda, Rodong Sinmun.

AFP

Kim Ki Nam er sagður hafa verið maðurinn á bak við það að magna upp fylgið heima fyrir á bak við Kim-ættarveldið.

Stjórnvöld í Norður-Kóreu lýstu honum sem „reyndum hluta af flokknum okkar og byltingunni, mikilsvirtum hugmyndafræðingi og virtum pólitískum aðgerðasinna”.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert