Tugir slasaðir eftir lestarslys

AFP

Allt að fjörutíu slösuðust þegar tveir lestarvagnar rákust á í austurrísku borginni Salzburg í nótt. Flestir eru með minni háttar áverka.

Stuttu eftir brottför lestarinnar frá Salzburg, en hún var á leið frá Zürich til Vínar, rákust vagnarnir saman. Ekki er vitað hvað olli slysinu, að sögn varðstjóra í slökkviliðinu. Slysið varð þegar verið var að tengja vagnana saman og lestin ekki á ferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert