Skaut samnemanda sinn í ökklann

AFP

Skotárás var gerð í miðskóla í borginni Ocala í Flórída-ríki í Bandaríkjunum í dag þegar nemandi við skólann skaut á samnemanda sinn og særði hann. Árásin átti sér stað þegar nemendur skólans gengu út úr skólabyggingunni til þess að mótmæla byssuofbeldi.

Haft er eftir lögreglunni í frétt AFP að árásarmaðurinn væri í haldi. Fréttir herma að sá sem fyrir árásinni varð hafi fengið skot í ökklann.

Nemendur á landsvísu í Bandaríkjunum höfðu verið hvattir til þess að ganga út úr skólum sínum í dag í tilefni af því að 19 ár eru frá því að skotárásin í Columbine-miðskólanum í Colorado-ríki árið 1999 átti sér stað sem kostaði 13 manns lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert