Marvel-stjarna hlýtur skilorð fyrir heimilisofbeldi

Majors á leið úr dómsal ásamt núverandi kærustu sinni Meghan …
Majors á leið úr dómsal ásamt núverandi kærustu sinni Meghan Good. DAVID DEE DELGADO

Marvel-stjarnan, Jontahan Majors, hlaut í dag skilorðsbundin dóm fyrir heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni, breska danshöfundinum Grace Jabbari.

Hæstaréttardómari dæmdi Majors til skilorðsbundinnar lausnar í ljósi þess að bæði sækjandi og verjandi voru sammála um að ákærurnar gæfu ekki tilefni til fangelsisvistar.

Hefur honum þess í stað verið gert að sitja 52 vikna langt námskeið fyrir gerendur í heimilisofbeldismálum og sæta áframhaldandi geðheilbrigðismeðferð.

„Ég vildi óska þess að ég væri að kyssa þig núna.“

Majors er best þekktur fyrir leik sinn sem illmenni Kang the Conqueror í Marvel myndunum og lék einnig hlutverk í Ant-Man and the Wasp: Quantumania og í sjónvarpsþáttarröðinni Loki á streymisveitunni Disney+.

Í vitnisburði sínum sagði fyrrverandi kærasta Major hann hafa snúið upp á handlegg hennar og barið hana í höfuðið í bifreið í kjölfar þess að hún hafi séð skilaboð í síma hans frá annarri konu sem lásu „Ég vildi óska þess að ég væri að kyssa þig núna.“

Áverkar hennar voru fingurbrot, marblettir og skurður á bak við eyra.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir