Bandaríski leikarinn Cole Brings Plenty fannst látinn eftir að hafa verið sakaður um heimilisofbeldi.
Plenty var 27 ára gamall og lék í þáttunum 1923 sem eru svokallaðir „spinoff“ þættir af þáttunum Yellowstone.
Fjölskylda hans greindi frá því að hans væri saknað eftir fund með umboðsmanni sínum fyrr í vikunni.
BBC greinir frá því að lögregla hafi síðar fundið hann látinn í bíl í Kansas-ríki í gær. Málið er nú í rannsókn.
Á þriðjudag nafngreindi lögregla Plenty í tengslum við rannsókn á heimilisofbeldi. Árásarmaðurinn hafði flúið vettvang áður en lögregla mætti.
Plenty sást síðar á umferðarmyndavélum yfirgefa Kansas-borg.
Frændi hans, leikarinn Moses Brings Plenty, greindi frá andláti Cole Plenty á Instagram. Yfirlýsing frá föður Cole fylgdi.
„Það hryggir mig að tilkynna að sonur minn, Cole, fannst látinn og er ekki lengur meðal vor.“