„Er þetta helvíti að byrja aftur?“

Spjallþættirnir Vikan með Gísla Marteini snúa aftur á skjáinn á föstudaginn kemur, 9. september. Auglýsing fyrir þættina kom út í dag.

Í auglýsingunni, sem notið hefur vinsælda á Facebook, eru athugasemdir frá „virkum í athugasemdum“ notaðar. Gísli Marteinn Baldursson er stjórnandi þáttanna sem sýndir eru á Rúv og Berglind Festival Pétursdóttir fer á stúfana í þáttunum. 

„Hrein hörmung“ og „Er þetta helvíti að byrja aftur?“ eru á meðal athugasemda sem notaðar eru í auglýsinguna. Rúv birti auglýsinguna á Facebook nú í morgun og inn hafa hrannast athugasemdir bæði jákvæðar og neikvæðar. 

Rúv getur bætt í safn sitt af ljótum athugasemdum en Júlíus nokkur Kristjánsson skrifaði við auglýsinguna: „Þarf hann að troða sér á Facebookina líka til að auglýsa sig“. „Ekki viss en svo er Kappsmál að byrja líka og það sko mikið skemmtilegra, ég horfi alltaf á það,“ skrifaði Jóhanna Sigríður Daníelsdóttir. 

Vikan með Gísla Marteini fer í loftið á föstudaginn klukkan 21:05, beint á eftir Kappsmáli, sem gleðja ætti téða Jóhönnu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú stendur allt og fellur með því að þú sért þolinmóður og berir þig með reisn. Reyndu að vinna í góðum skorpum og hvíla þig inn á milli - þannig kemurðu meiru í verk.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir