Linda Ýr Guðrúnardóttir, 12 ára, tók lagið Snjókorn falla í Jólastjörnunni 2019. Leitin að Jólastjörnunni 2019 er hafin í Sjónvarpi Símans Premium. Þar fá 12 ungir söngsnillingar að hefja upp raust sína fyrir framan dómnefnd. Sigurvegarinn mun svo standa á sviðinu á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins.