Boðið á tónleikaferðalag

Ryan Gosling er í hljósmevitinni Dead Man's Bones sem þykir …
Ryan Gosling er í hljósmevitinni Dead Man's Bones sem þykir nokkuð góð. mbl.is/Cover Media

Meðlimir amerísku rokkhljómsveitarinnar The Gaslight Anthem eru hrifnir af Ryan Gosling og hljómsveit hans, Dead Man's Bones, og hafa boðið honum að koma með sér á tónleikaferðalag.

Brian Fallon, söngvari The Gaslight Anthem, birti mynd af Gosling á Instagram og hrósaði leikaranum. „Hey stelpa...Dead Man's Bones er raunverulega góð [hljómsveit]. Komdu með okkur á tónleikaferðalag,“ stóð fyrir neðan myndina.

Gosling og Zach Sheilds skipa hljómsveitina Dead Man's Bones en árið 2009 kom fyrsta og eina plata hljómsveitarinnar út. Lög plötunnar eru öll ástarlög um skrímsli og drauga.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg