Kynntust í raunveruleikasjónvarpi og eiga nú barn saman

Blake Horstmann og Giannina Gibelli eru orðnir foreldrar!
Blake Horstmann og Giannina Gibelli eru orðnir foreldrar! Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjörnurnar Blake Horstmann og Giannina Gibelli tóku á móti sínu fyrsta barni saman þann 29. mars síðastliðinn. Parið greindi frá þessu í sameiginlegri færslu á Instagram. 

„Fyrsti andadrátturinn hans tók okkar í burtu. Þetta er Heath Orion Horstmann, fæddur á föstudaginn langa 3/29/24. Allir eru komnir heim ánægðir og heilbrigðir – meðganga hans og fæðing voru sannkallaður draumur. 

Líf okkar er bjartara, fyllra og að eilífu betra. Takk fyrir alla ástina og kveðjurnar, Heath á svo marga sam hann elskar. Við erum foreldrar!“ skrifuðu þau við fallega myndaröð af fæðingardeildinni. 

Leituðu bæði að ástinni í raunveruleikaþáttum

Horstmann og Gibelli skutust upp á stjörnuhimininn þegar þau tóku þátt í sitthvorum raunveruleikaþættinum í leit að ástinni.

Horstmann tók þátt í fjórtándu þáttaröð Batchelorette þar sem hann keppti um hjarta Beccu Kufrin, en hann lenti í öðru sæti. Hann tók síðan þátt í sjöttu þáttaröð af Bachelor in Paradise þar sem hann kynntist Kristinu Schulman, en þau hættu þó fljótlega saman.

Gibelli tók þátt í fyrstu þáttaröð Love is Blind þar sem hún gekk upp að altarinu með Damian Powers, en þau giftu sig þó ekki þar sem Powers sagði „nei“ við altarið.

Það kemur því líklega fæstum á óvart að parið hafi kynnst í raunveruleikaþætti, en þau tóku bæði þátt í fyrstu þáttaröð af All Star Shore þar sem þau urðu yfir sig ástfangin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert