Frumsýndi kúluna á rauða dreglinum

Óskarsverðlaunin verða veitt í nótt.
Óskarsverðlaunin verða veitt í nótt. AFP/Frederic J. Brown

Bandaríska leikkonan Vanessa Hudgens og eiginmaður hennar Cole Tucker eiga von á barni. Um er að ræða þeirra fyrsta barn.

Hudgens frumsýndi óléttukúluna á rauða dregli Óskarsverðlaunanna, en þau verða veitt í nótt.

Kynntust á Zoom

Parið gift sig í desember í fyrra, en þau kynnt­ust í gegn­um fjar­skipta­for­ritið Zoom þegar þau sóttu bæði hug­leiðslu­tíma. Þau sáust fyrst sam­an í nóv­em­ber 2020.

Hudgens er þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndunum High School Musical.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert