Dönsk hönnun fyrir besta vin mannsins

Hönnunarmerkið Hay hefur kynnt til sögunnar nýja vörulínu fyrir hunda!
Hönnunarmerkið Hay hefur kynnt til sögunnar nýja vörulínu fyrir hunda! Samsett mynd

Það hefur ekki alltaf verið auðvelt fyrir fagurkera að finna fallegar gæludýravöur sem passa inn á heimilið og klæða dýrin vel. Á undanförum árum hefur úrvalið þó aukist gæludýraeigendum til mikillar ánægju, en nú hefur hið ástsæla danska hönnunarmerki Hay komið út með ferska vörulínu sem er hönnuð fyrir besta vin mannsins, hundinn. 

Línan kom mörgum á óvart en hún er samstarf á milli Mette Hay, eiganda Hay, og vinkonu hennar Barbara Maj Husted Werner. Vörulínan er hönnuð fyrir hundaeigendur og gæludýr þeirra og inniheldur ltiríkar og fjörugar vörur sem smellpassa við einkenni og vöruúrval Hay. 

Í vörulínunni má meðal annars finna litrík hundabæli, ólar, matarskálar og flotta hálsklúta sem eru skemmtilegir aukahlutir fyrir hunda, en þeir eru það smart að einhverjir eigendur munu eflaust freistast til að fá þá að láni. 

Vörulínan á eflaust eftir að gleðja ófáa hönnunarunnendur.
Vörulínan á eflaust eftir að gleðja ófáa hönnunarunnendur. Ljósmynd/Epal.is
Í vörulínunni eru meðal annars ofursætir hálsklútar.
Í vörulínunni eru meðal annars ofursætir hálsklútar. Ljósmynd/Epal.is
Það getur gert mikið fyrir hundinn að vera með fallega …
Það getur gert mikið fyrir hundinn að vera með fallega og klæðilega hálsól. Ljósmynd/Epal.is
Skemmtilegar matarskálar sem fegra heimilið.
Skemmtilegar matarskálar sem fegra heimilið. Ljósmynd/Epal.is
Hundabæli sem getur verið hluti af heildarútliti hvaða rýmis sem …
Hundabæli sem getur verið hluti af heildarútliti hvaða rýmis sem er. Ljósmynd/Epal.is
Vörurnar eru komnar í sölu hjá Epal.
Vörurnar eru komnar í sölu hjá Epal. Ljósmynd/Epal.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert