Baltasar Kormákur á von á sínu fimmta barni

Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel.
Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel. Eggert Jóhannesson

Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndalistarkona og leikmyndahönnuður, eiga von á sínu fyrsta barni síðla sumars. Er þetta fyrsta barn parsins sem hefur verið saman frá árinu 2019.

Vísir greindi fyrst frá.

Fyrir á Baltasar fjögur börn úr fyrri samböndum. Hann var áður kvæntur Lilju Pálmadóttur en hjónin skildu að borði og sæng sama ár og Baltasar og Sunneva hófu samband sitt.

Fjölskylduvefurinn óskar parinu hjartanlega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert