Birgitta Líf og Enok eignuðust lítinn vatnsbera

Enok Jónsson og Birgitta Líf Björnsdóttir eignuðust son 8. febrúar.
Enok Jónsson og Birgitta Líf Björnsdóttir eignuðust son 8. febrúar. Ljósmynd/Instagram

Birgitta Líf Björnsdóttir, sam­fé­lags­miðlastjarna og markaðsstjóri World Class, fæddi son 8. febrúar. Birgitta greindi frá fæðingu sonarins á Instagram í dag.

Drengurinn litli er fyrsta barn Birgittu Lífar og Enoks Jónssonar. Hann var 17 merkur og 52 cm við fæðingu. 

„𝟶𝟾.𝟶𝟸.𝟸𝟺 🤍 ö𝚕𝚕 𝚑𝚎𝚒𝚖𝚜𝚒𝚗𝚜 á𝚜𝚝,“ skrifar Birgitta við myndina af syni sínum, sem er fæddur í vatnsberamerkinu. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert