Ófrísk eftir að hafa eytt 26,4 milljónum í glasafrjóvgun

Rhian Sugden á von á sínu fyrsta barni í maí …
Rhian Sugden á von á sínu fyrsta barni í maí 2024. Skjáskot/Instagram

Hin 37 ára gamla fyrirsæta Rhian Sugden er ófrísk að sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, leikaranum Oliver Mellor, eftir að hafa eytt 26,4 milljónum króna í glasafrjóvgun. 

Sugden birti mynd af óléttukúlunni á Instagram á dögunum og tilkynnti að hún væri ófrísk eftir að hafa farið í gegnum átta glasafrjóvgunarmeðferðir. 

Síðastliðinn miðvikudag kom Sugden fram í þættinum Steph's Packed Lunch þar sem hún opnaði sig um þá erfiðleika sem hjónin hafa gengið í gegnum þegar kemur að barneignum. „Ég veit ekki hvernig mér líður ef ég á að vera hreinskilin, mér líður enn eins og þetta sé ekki raunverulegt. Eftir að hafa trúað því að þetta myndi ekki gerast svo lengi og svo gerist þetta. Ég er bara mjög hissa á þessu öllu eins og er,“ sagði hún. 

„Ég er búin að fara í skanna í hverri viku vegna þess að það er læknamiðstöð í nágrenninu svo ég kíki alltaf niður og athuga hvort allt sé enn í lagi og að það sé enn til staðar,“ bætti hún við. 

„Við vissum alltaf að það að eignast börn væri í spilunum og maður býst bara við því að verða ólétt. Þú giftir þig og þá byrjar þú að reyna að eignast börn og svo gerist það bara. Þú eyðir öllum þessum árum í að reyna að verða ekki ólétt og svo þegar það kemur að því þá gerist það bara ekki,“ útskýrði Sugden. 

View this post on Instagram

A post shared by Rhian Sugden (@rhiansuggers)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert