Elsta Kardashian-systirin berar óléttukúluna

Kourtney Kardashian og eiginmaður hennar, Travis Barker, eiga von á …
Kourtney Kardashian og eiginmaður hennar, Travis Barker, eiga von á barni saman. Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian greindi frá því í síðasta mánuði að hún ætti von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Travis Barker. Fyrir á hún þrjú börn og Barker tvö börn, en þau bíða nú spennt eftir að lítill drengur komi í heiminn.

Voru þetta miklar gleðifréttir þar sem hjónin höfðu upplifað erfiðleika með barneignir undanfarin þrjú ár. Kardashian og Barker kynntust árið 2020 og ákváðu að láta reyna á barneignir aðeins nokkrum mánuðum síðar. Þau höfðu reynt að eignast barn með hjálp tæknifrjóvgunar en ferlið hafði slæm áhrif á heilsu Kardashian.

Kardashian hefur verið dugleg að deila myndum af óléttukúlunni á Instagram-reikningi sínum, en hún hefur notið þess að sleikja sólina í sumar á hinum ýmsu stöðum og í hinum ýmsu sundfötum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert