Guðmóðir Jolie hefur fulla trú á Jolie og Pitt

Angelina Jolie og Brad Pitt árið 2014 þegar allt lék …
Angelina Jolie og Brad Pitt árið 2014 þegar allt lék í lyndi. AFP

Guðmóðir Angelinu Jolie, breska leikkonan Jacqueline Bisset, hefur fulla trú á að Jolie og Brad Pitt finni lausn á forræðisdeilu sinni. Jolie og Pitt, sem eiga sex börn saman, tilkynntu skilnað sinn árið 2016 en hafa enn ekki komist að samkomulagi um forræði á börnum sínum. 

Bisset býr í Los Angeles og var nákomin móður Jolie, Marcheline Betrand. Bisset er í sambandi við Jolie og sást meðal annars úti að borða með henni í París í fyrra.  

„Angelina og Brad munu komast að niðurstöðu að lokum. Þau elska börnin sín bæði tvö svo þessu mun ljúka,“ sagði Bisset við Daily Mail á dögunum. 

Spenna er að færast í forræðisdeilu Jolie og Pitts en gert er ráð fyrir að mál þeirra verði tekið fyrir í næstu viku og muni standa þangað til 23. október. Bæði eru þau með langan vitnalista auk þess sem Jolie krafðist þess að dómaranum í málinu yrði vikið. Er Jolie meðal annars sögð hafa gert margt til þess að tefja málið. Árið 2018 skipaði dómari henni að bæta samband barnanna við föður sinn.

Angelina Jolie með fjórum af sex börnum sínum á frumsýningu …
Angelina Jolie með fjórum af sex börnum sínum á frumsýningu árið 2019. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert