Kia efst hjá J.D. Power

Kia er í efsta sætinu í nýrri áreiðanleikakönnun bandaríska greiningafyrirtækisins J.D. Power fyrir árið 2017. Þetta er annað árið í röð sem Kia er í á toppnum í þessari áreiðanleikakönnun á meðal bílaframleiðenda heims.

Kia bílar biluðu minnst allra bíla samkvæmt könnunni sem náði til 80.000 eigenda nýrra bíla í Bandaríkjunum. Í könnun J.D. Power eru bíleigendur spurðir um áreiðanleika þeirra og bilanir á fyrstu 3 mánuðum. Lagðar eru fyrir þá 233 spurningar á átta mismunandi sviðum til að fá sem besta mynd af gæðum bíla allra bílaframleiðenda.

Það að skora hátt á lista J.D. Power eykur mikið tryggð bíleigenda og þeir hafa meiri tilhneigingu til að kaupa aftur bíla frá þeim framleiðendum. Áreiðanleiki nýrra bíla hefur hækkað um 8% frá síðustu könnun.

Þetta er í þriðja skiptið sem bílamerki sem ekki telst lúxusbílamerki er efst á listanum allt frá því könnunin var fyrst framkvæmd árið 1987.

Í öðru sæti á eftir Kia varð Genesis, lúxusbílamerki Hyundai, sem er systurfyrirtæki Kia í Suður-Kóreu. Í þriðja sæti varð þýski sportbílaframleiðandinn Porsche.

Kia Niro, Soul og Sportage voru efst af Kia bílunum í ár ásamt Cadenza og Forte sem er bandaríska útgáfan af cee'd. Á síðasta ári voru Kia Sportage og Soul í efstu sætum í sínum flokkum.

mbl.is