Hekla býður til vorsýningar á laugardaginn og verða vegleg tilboð af úrvali bíla og aukahluta.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heklu.
„Til sýnis verður meðal annars ID. lína Volkswagen en bílarnir í línunni eru nú orðnir fimm talsins, allt 100% rafbílar sem reynst hafa afar vel. Fjórhjóladrifnu sportjepparnir ID.4 og ID.5 GTX verða á sérstöku vortilboði,“ segir í tilkynningunni.
Vorsýningin verður á Laugavegi 174 og stendur frá klukkan 12-16 en Bílakjarninn, umboðsaðili Heklu í Reykjanesbæ, mun einnig vera með sýningu sama dag.
Bílar frá Skoda, bæði rafmagns og dísel, verða til sýnis og þá segir að Skoda Octavia verði „nú loksins fáanleg á ný“ og verður hún á sérstöku tilboðsverði ásamt Skoda Kamiq og Skoda Enyaq.
„Sýningarsalur Audi verður einnig fullur af spennandi bílum eins og Audi Q8 e-tron sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi, auk Audi e-tron GT og Audi Q4 e-tron sem er væntanlegur aftur á næstu dögum.“
Þá segir að lokum í tilkynningunni að ekki megi gleyma GWM Ora sem sé nýr á Íslandi.
„Vel búinn bíll á frábæru verði og svo sannarlega þess virði að skoða.“