Ásgrímur Halldórsson SF og grænlenska skipið Polar Ammassak héldu í gær til loðnuleitar á ný og eru þau nú stödd suðaustur af landinu. Er þetta í fjórða sinn frá haustmælingu á síðasta ári sem reynt er að ná að mæla loðnustofninn með von um að gefin verði út ráðgjöf um veiðar og líklega í síðasta sinn sem reynt verður að finna loðnu í nægilegu magni til að réttlæta veiðar.
Haustmælingin á síðasta ári mældi um 320 þúsund tonn af kynþroska loðna sem dugði ekki til að gefa út ráðgjöf um veiðar, en litlu munaði og gaf niðurstaða mælinga væntingar um að það gæti orðið 200 þúsund tonna loðnuvertíð þennan veturinn.
Haldið var til viðbótarmælinga í desember og fundust þá ekki þessi 320 þúsund tonn, ekki heldur í vetrarmælingu stofnunarinnar. Var því haldið til leitar á ný í febrúar og tóku þrjú skip þátt, en um miðjan mánuðinn var orðið ljóst að ekki fannst nægilegt magn á leitarslóð til að breyta fyrri ráðleggingu Hafrannsóknastofnunar um að engar veiðar skyldu stundaðar.
Ljóst þykir að þrátt fyrir að loðna kunni að finnast nú í verulegu magni eru uppi krefjandi aðstæður fyrir loðnuskipin og landvinnslu þar sem langt er liðið á vertíðina sem gæti þýtt að ekki verði hægt að finna loðnu með góða hrognafyllingu, auk þess sem tímabilið til að ná að veiða loðnuna er orðið af skornum skammti.
Á móti kemur að þar sem svona langt er liðið á vertíðina fá Norðmenn ekki að veiða sinn hlut af loðnunni sé ráðgjöf gefin út þar sem veiðitímabili norskra skipa er að renna út og loðnan er líklega ekki innan afmarkaðs veiðisvæði austan Íslands þar sem norskum skipum er gert að veiða. Megnið af loðnukvóta nú myndi því skila sér til íslenskra útgerða.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 405,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 200,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,36 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 100,62 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 163,13 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 6.882 kg |
Þorskur | 284 kg |
Skarkoli | 47 kg |
Samtals | 7.213 kg |
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.632 kg |
Þorskur | 72 kg |
Rauðmagi | 28 kg |
Samtals | 1.732 kg |
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 4.115 kg |
Þorskur | 155 kg |
Sandkoli | 47 kg |
Þykkvalúra | 20 kg |
Ýsa | 4 kg |
Samtals | 4.341 kg |
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.313 kg |
Karfi | 492 kg |
Þorskur | 320 kg |
Ýsa | 170 kg |
Steinbítur | 94 kg |
Þykkvalúra | 14 kg |
Grásleppa | 9 kg |
Hlýri | 7 kg |
Samtals | 2.419 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 405,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 200,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,36 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 100,62 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 163,13 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 6.882 kg |
Þorskur | 284 kg |
Skarkoli | 47 kg |
Samtals | 7.213 kg |
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.632 kg |
Þorskur | 72 kg |
Rauðmagi | 28 kg |
Samtals | 1.732 kg |
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 4.115 kg |
Þorskur | 155 kg |
Sandkoli | 47 kg |
Þykkvalúra | 20 kg |
Ýsa | 4 kg |
Samtals | 4.341 kg |
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.313 kg |
Karfi | 492 kg |
Þorskur | 320 kg |
Ýsa | 170 kg |
Steinbítur | 94 kg |
Þykkvalúra | 14 kg |
Grásleppa | 9 kg |
Hlýri | 7 kg |
Samtals | 2.419 kg |