Dóra til liðs við Hafrannsóknastofnun

Dóra MAgnúsdóttir hefur gengið til liðs við Hafrannsóknastofnun og er …
Dóra MAgnúsdóttir hefur gengið til liðs við Hafrannsóknastofnun og er nýr samskiptastjóri stofnunarinnar. Samsett mynd

Dóra Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Hafrannsóknastofnunar, að þvír er segir í fréttatilkynningu. Þar segir að þessi nýja staða geri stofnuninni kleift að fylgja stefnu sinni um aukna áherslu á á upplýsingamiðlun, samskipti og almannatengsl. Alls sóttu 49 um stöðu samskiptastjóra stofnunarinnar.

Í tilkynningunni segir að Dóra hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði samskipta og almannatengsla. Hún hefur einnig reynslu af markaðsmálum, vef-, verkefna- og viðburðastjórnun sem og blaðamennsku og leiðsögn. Dóra er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA), gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og viðskipta- og markaðsfræði frá Interactive Marketing and Multimedia Academy í Danmörku auk þess að vera með B.Sc.gráðu í landfræði frá Háskóla Íslands.

Áður en Dóra hóf störf hjá Hafrannsóknarstofnun starfaði hún sem fræðslu- og kynningarstjóri hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð. Þar bar hún ábyrgð á námskeiðahaldi stofnunarinnar og öðrum fræðslumálum ásamt kynningar- og vefmálum, samfélagsmiðlum, þróun rafrænnar miðlunar og almannatengslum.

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar. mbl.is/Arnþór Birkisson

„Við hlökkum til að fá góðan liðsmann til okkar til að efla innri og ytri samskipti Hafrannsóknarstofnunar. Við höfum væntingar um að með þessu nýja starfi og breyttum áherslum varðandi samskipti verðum við enn fremri en við höfum verið á sviði almannatengsla og miðlun upplýsinga“ er hafy eftir Þorsteini Sigurðssyni, forstjóra Hafrannsóknastofnunar, í tilkynningunni.

„Ég er mjög áhugasöm um þá mikilvægu starfsemi sem Hafrannsóknarstofnun sinnir enda að upplagi afar forvitin manneskja. Þó ég sé nýbyrjuð hef ég þegar áttað mig á að hér starfar heill her af gríðarlega vel menntuðu og hæfu fólki. Fólk sem býr yfir yfirgripsmikill þekkingu, um lífríki sjávar og vatna, sem nauðsynleg er þjóð sem byggir afkomu sína að miklu leyti á náttúrulegu umhverfi sínu; hafi og vötnum,“ segir Dóra Magnúsdóttir, nýr samskiptastjóri Hafrannsóknastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 428,11 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 258,87 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,31 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 258,83 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 823 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 865 kg
14.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 719 kg
Ufsi 34 kg
Samtals 753 kg
14.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 892 kg
Ufsi 52 kg
Karfi 5 kg
Samtals 949 kg
14.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 767 kg
Samtals 767 kg
14.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 140 kg
Samtals 893 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 428,11 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 258,87 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,31 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 258,83 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 823 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 865 kg
14.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 719 kg
Ufsi 34 kg
Samtals 753 kg
14.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 892 kg
Ufsi 52 kg
Karfi 5 kg
Samtals 949 kg
14.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 767 kg
Samtals 767 kg
14.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 140 kg
Samtals 893 kg

Skoða allar landanir »