Hættir eftir 32 ár við Slysavarnaskóla sjómanna

Tryggja þarf að á sjónum séu menn sem hafa visku …
Tryggja þarf að á sjónum séu menn sem hafa visku til að mæta aðstæðum sem upp geta komið, segir Hilmar Snorrason. mbl.is/Sigurður Bogi

„Sá árangur í slysavörnum á meðal sjómanna sem náðst hefur sést best í fækkun slysa. Margir samverkandi þættir koma hér til, en mestu ræður alltaf að við störf og stjórnvöl séu menn sem hafa visku til að mæta þeim aðstæðum sem upp geta komið,“ sagði Hilmar Snorrason, fráfarandi skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, í Morgunblaðinu á laugardag.

Skólastjórastarfinu, sem Hilmar hefur gegnt síðastliðin 32 ár, lætur hann af nú um mánaðamótin. Nærri sjötugsaldri tekur við nýr kafli í lífinu og þau Hilmar og Áslaug Kristín Hansen eiginkona hans flytjast búferlum til Spánar á næstu vikum. Bogi Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri tekur við keflinu af Hilmari.

Björgunaræfing sjómanna.
Björgunaræfing sjómanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Stundum gerist mikið með einföldum breytingum,“ segir Hilmar.

Hann rifjar upp að þegar hans afskipti af þessum málum hófust um árið 1990 hafi slys til sjós verið um 800 á ári. Þegar gerðir voru kjarasamningar milli sjómanna og útgerðar um þetta leyti hafi verið sett inn ákvæði um staðgengilslaun. Inntak þess var að ef sjómaður veiktist eða slasaðist við störf þá skyldi hann fá sömu laun og sá sem kæmi í hans stað. Þetta hafi breytt miklu og tilkynningum um slys hafi fjölgað. Myndin hafi orðið skýrari og þarna komið hvati til þess að skrá öll slys. Slíkar upplýsingar hafi gert starf að slysavörnum markvissara.

Rætt var við Hilmar í Morgunblaðinu á laugardag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 440,60 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,46 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 193,34 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,88 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,33 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Rabbý SI 37 Handfæri
Þorskur 524 kg
Samtals 524 kg
13.5.24 Hrefna SF 52 Handfæri
Þorskur 684 kg
Ufsi 348 kg
Samtals 1.032 kg
13.5.24 Þórdís SI 6 Handfæri
Þorskur 552 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 557 kg
13.5.24 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 665 kg
Ufsi 54 kg
Samtals 719 kg
13.5.24 Anna ÓF 83 Handfæri
Þorskur 734 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 2 kg
Samtals 744 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 440,60 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,46 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 193,34 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,88 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,33 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Rabbý SI 37 Handfæri
Þorskur 524 kg
Samtals 524 kg
13.5.24 Hrefna SF 52 Handfæri
Þorskur 684 kg
Ufsi 348 kg
Samtals 1.032 kg
13.5.24 Þórdís SI 6 Handfæri
Þorskur 552 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 557 kg
13.5.24 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 665 kg
Ufsi 54 kg
Samtals 719 kg
13.5.24 Anna ÓF 83 Handfæri
Þorskur 734 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 2 kg
Samtals 744 kg

Skoða allar landanir »