Jónas Páll Jónasson hefur tekið við starfi sviðsstjóra botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Hann hefur starfað á botnsjávarsviði Hafrannsóknastofnunar frá árinu 2011, að því er fram kemur á vef stofnunarinnar.
Jónas hefur borið ábyrgð á og sinnt rannsóknum og stofnmati fyrir humar, hörpudisk og sæbjúgu. Jafnframt hefur Jónas tekið að sér ráðgjöf og rannsóknavinnu fyrir aðra hryggleysingja ásamt rannsóknum á bolfiskum.
Auk þess hefur Jónas haft umsjón með og kennir á stofnmatslínu sjávarútvegsskóla GRÓ-FTP sem hefur aðsetur á Hafrannsóknastofnun.
Jónas tekur við af Guðbjörgu Ástu Ólafsdóttur en hún tók við af Guðmundi Þórðarsyni á síðasta ári.
Botnsjávarsvið sinnir vöktun og rannsóknum á botnlægum tegundum, allt frá helstu nytjategund Íslendinga, þorskinum, til viðkvæmra og flókinna búsvæða.
„Við erum búin að vera í varnarbaráttu nokkuð lengi. Bæði hvað varðar almennar rannsóknir og einnig vöktun margra minni stofna. Á sama tíma hafa kröfur samfélagsins og áhugi á vannýttum stofnum aukist. Stór verkefni bíða sviðsins við skipulagningu nýtingar við Íslands, eins og áherslur stjórnvalda um friðun 30% hafsvæða fyrir árið 2030. Þessi verkefni passa vel innan þess ramma sem Hafrannsóknastofnun hefur verið að sinna, eftir bestu getu,“ er haft eftir Jónasi.
„Vonandi getum við eflt starfsemina á þessum sviðum, bæði með auknu fjármagni og styrkjafé,“ segir hann.
Uppfært klukkan 10:09: Upphaflega sagði að Jónas hafi tekið við af Guðmundi Þórðarsyni en rétt er að hann tekur við af Guðbjörgu Ástu Ólafsdóttur. Fréttin hefur verið leiðrétt með tilliti til þessa.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 14.5.24 | 426,21 kr/kg |
Þorskur, slægður | 14.5.24 | 469,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 14.5.24 | 256,54 kr/kg |
Ýsa, slægð | 14.5.24 | 248,81 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 14.5.24 | 129,45 kr/kg |
Ufsi, slægður | 14.5.24 | 131,21 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.5.24 | 313,00 kr/kg |
Gullkarfi | 14.5.24 | 260,28 kr/kg |
Litli karfi | 8.5.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 6.5.24 | 150,00 kr/kg |
15.5.24 Gulltindur ST 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 782 kg |
Samtals | 782 kg |
15.5.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 744 kg |
Ufsi | 103 kg |
Samtals | 847 kg |
15.5.24 Annetta ÍS 131 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 167 kg |
Samtals | 167 kg |
15.5.24 Gunnþór ÞH 75 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.218 kg |
Þorskur | 49 kg |
Skarkoli | 9 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 1.280 kg |
15.5.24 Sveinbjörg ÁR 49 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 245 kg |
Ufsi | 10 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 256 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 14.5.24 | 426,21 kr/kg |
Þorskur, slægður | 14.5.24 | 469,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 14.5.24 | 256,54 kr/kg |
Ýsa, slægð | 14.5.24 | 248,81 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 14.5.24 | 129,45 kr/kg |
Ufsi, slægður | 14.5.24 | 131,21 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.5.24 | 313,00 kr/kg |
Gullkarfi | 14.5.24 | 260,28 kr/kg |
Litli karfi | 8.5.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 6.5.24 | 150,00 kr/kg |
15.5.24 Gulltindur ST 74 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 782 kg |
Samtals | 782 kg |
15.5.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 744 kg |
Ufsi | 103 kg |
Samtals | 847 kg |
15.5.24 Annetta ÍS 131 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 167 kg |
Samtals | 167 kg |
15.5.24 Gunnþór ÞH 75 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.218 kg |
Þorskur | 49 kg |
Skarkoli | 9 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 1.280 kg |
15.5.24 Sveinbjörg ÁR 49 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 245 kg |
Ufsi | 10 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 256 kg |