Kveiktu í neyðarblysum fyrir framan Alþingishúsið

Mótmælendur sendu út neyðarkall til þjóðarinnar vegna stöðvun á strandveiðum.
Mótmælendur sendu út neyðarkall til þjóðarinnar vegna stöðvun á strandveiðum. Ljósmynd/Aðsend

Strandveiðimenn skutu upp neyðarblysum fyrir utan Alþingishúsið í mótmælaskyni við stöðvun matvælaráðherra á strandveiðum. Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, sagði blysin tákna neyðarkall til þjóðarinnar. 

Mótmælaaðgerðir fóru fram í dag, en strandveiðimenn, aðstandendur og almenningur söfnuðust saman fyrir utan Hörpu og gengu að Austurvelli í mótmælaskyni. 

Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands.
Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands.

Kári Stefáns hélt þrusu ræðu

Kjartan segir mætingu betri en hann hafði þorað að vona. Mótmælendur hafi fyrst gengið að Stjórnarráðinu og barið þar á dyr en enginn verið við. Þau hafi þá arkað niður að Austurvelli og stillt sér þar upp. 

Margt spennandi var á dagskrá en tónlistarmaðurinn KK tók lagið fyrir viðstadda og það gerðu einnig Kristján Torfi og trillukarlakórinn. 

Þá segir Kjartan það sérstaklega hafa staðið upp úr að Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sá um ræðuhald, en hann sagði stjórnvöld bera ábyrgð gagnvart strandveiðimönnum. 

Kjartan Páll segir ábyrgðina liggja hjá stjórnvöldum og stórútgerðum.
Kjartan Páll segir ábyrgðina liggja hjá stjórnvöldum og stórútgerðum. Ljósmynd/Viktor Freyr

Hungurlús sem okkur er skömmtuð

Að lokum hafi viðstaddir svo stillt sér upp fyrir framan Alþingishúsið og skotið upp neyðarblysum til að senda út ákall til þjóðarinnar.

„Um að hjálpa okkur að berjast fyrir mannsæmandi strandveiðakerfi,“ segir Kjartan. Hann kveðst hafa misst alla von um að það gerist nokkuð á þessu ári en segir að strandveiðimenn krefjist þess að kerfið verði lagfært fyrir næstu vertíð og til frambúðar. 

„Þetta er svo mikil hungurlús sem okkur er skömmtuð og nú er komið að því að gera kerfið þannig að það sé hægt að lifa á strandveiðum.“ 

Mótmælendur á Austurvelli í dag.
Mótmælendur á Austurvelli í dag. mbl.is/Óttar

Stjórnvöld og stórútgerðir ráða

Hann segir sorglega lítið vanta upp á til að aflaviðmið séu næg, en Landssamband smábátaeiganda óskaði eftir að ráðherra hækkaði aflaviðmið um 4.000 tonn. 

„Það lá alveg fyrir að potturinn væri of lítill og þyrfti að vera stærri, seinasta sumar,“ segir Kjartan. Hann segir sorglega lítið vanta upp á, en að fiskveiðiafli smábáta sé aðeins um 1,8 prósent. 

 „Það þyrfti ekki nema hálft prósent eða eitt prósent í viðbót til þess að þetta myndi ganga upp. En þeir sem að ráða sem eru bæði stjórnvöld og kannski stórútgerðirnar þau sjá bara ofsjónum yfir þessu hálfa prósenti.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,05 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 320,27 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 144,84 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,83 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,41 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

12.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 507 kg
Keila 153 kg
Steinbítur 145 kg
Ufsi 10 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 824 kg
12.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.448 kg
Samtals 2.448 kg
12.5.24 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 6.413 kg
Þorskur 4.005 kg
Þykkvalúra 3.602 kg
Ufsi 2.339 kg
Skarkoli 2.284 kg
Langa 516 kg
Steinbítur 345 kg
Samtals 19.504 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,05 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 320,27 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 144,84 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,83 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,41 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

12.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 507 kg
Keila 153 kg
Steinbítur 145 kg
Ufsi 10 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 824 kg
12.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.448 kg
Samtals 2.448 kg
12.5.24 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 6.413 kg
Þorskur 4.005 kg
Þykkvalúra 3.602 kg
Ufsi 2.339 kg
Skarkoli 2.284 kg
Langa 516 kg
Steinbítur 345 kg
Samtals 19.504 kg

Skoða allar landanir »