Vélarvana strandveiðibátar áhyggjuefni

„Ánægjuleg breyting sem ég hef orðið var við að undanförnu …
„Ánægjuleg breyting sem ég hef orðið var við að undanförnu er að sjómenn eru duglegri en áður að leita sér sálrænnar aðstoðar eftir áföll, og höfum við eftir atvikum leiðbeint þeim um hvar þeir geta fengið hjálp til að vinna úr upplifun sinni,“ segir Jón Pétursson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slysatölfræðin leiðir í ljós að nærri helmingur slysa um borð í fiskveiðiskipum verða þegar vindstyrkur er lítill. Mikilvægt er að fley sem flytja farþega, s.s. hvalaskoðunarskip, gefi upp nákvæman farþegafjölda.

Jón Pétursson segir í síðasta blaði 200 mílna áhyggjuefni hve algengt það er að strandveiðibátar verði vélarvana og að þá þurfi að draga í land. „Um leið og strandveiðar hefjast sjáum við uppsveiflu í gögnunum. Blessunarlega hafa þessi atvik ekki endað með alvarlegum slysum, en þó hafa orðið óhöpp sem kallað hafa á nánari rannsókn.“

Jón er rannsóknarstjóri sjósviðs hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa og segir hann Samgöngustofu þegar hafa brugðist við þróuninni með bættri fræðslu handa strandveiðimönnum: „Stofnunin gaf út tékklista sem sjómenn geta stuðst við þegar þeir hefja veiðar að vori, og þannig tryggt að allt gangi vel fyrir sig.“

Mikill fjöldi báta er á strandveiðum.
Mikill fjöldi báta er á strandveiðum. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Önnur áskorun sem Jón vill gefa gaum er vöxtur í farþegaflutningum umhverfis Íslands og á hann þar bæði við stóru skemmtiferðaskipin en ekki síður minni fley, s.s. þau sem notuð eru í hvalaskoðunarferðum.

„Það skiptir miklu máli að farþegafjöldinn um borð sé rétt skráður því ef eitthvað kemur upp á þurfa björgunaraðilar að vita upp á hár hve margir farþegarnir eru. Ef skráningunni er ábótavant og gefið hefur verið upp að farþegarnir séu 40, en þeir eru í reynd 60, hvað á þá að gera þegar 40 manns hefur verið bjargað úr háska?“

Um stóru farþegaskipin segir Jón að Landhelgisgæslan og aðrar stofnanir fylgist mjög vel með mögulegum hættum og að á stöku stað gæti þurft að marka skýrari reglur um hvaða siglingaleiðir þessi skip nota. „Er t.d. vert að athuga hvort það er ráðlegt að þessi skipi sigli langt inn á Breiðafjörð, og hve nálægt Hornströndum þau ættu að sigla, þá ekki síst með tilliti til umhverfissjónarmiða.“

Ítarlega var rætt við Jón í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 438,80 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,97 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,47 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,41 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 189,44 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,40 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,17 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Hólmi ÞH 56 Handfæri
Þorskur 710 kg
Ufsi 8 kg
Samtals 718 kg
13.5.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 472 kg
Samtals 472 kg
13.5.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 437 kg
Samtals 437 kg
13.5.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 761 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 39 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 853 kg
13.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 625 kg
Samtals 625 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 438,80 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,97 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,47 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,41 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 189,44 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,40 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,17 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Hólmi ÞH 56 Handfæri
Þorskur 710 kg
Ufsi 8 kg
Samtals 718 kg
13.5.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 472 kg
Samtals 472 kg
13.5.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 437 kg
Samtals 437 kg
13.5.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 761 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 39 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 853 kg
13.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 625 kg
Samtals 625 kg

Skoða allar landanir »