Samherji bætist í hóp útgerða með Ölduna

Forritið einfaldar utanumhald öryggismála um borð skipa. Samherji hefur nú …
Forritið einfaldar utanumhald öryggismála um borð skipa. Samherji hefur nú bæst við hóp fyrirtækja sem taka þátt í prófunum. Samsett mynd

Nýtt öryggisstjórnarkerfi sem einfaldar til muna utanumhald í kringum æfingar, öryggisskoðanir og nýliðaþjálfun hefur fengið mjög góðar viðtökur, jafnt hjá sjómönnum sem og útgerðum, segir Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í öryggisstjórnun, í Morgunblaðinu.

Forritið nefnist „Aldan“ og er enn í prófunum en markmiðið er að þróa verkfæri í samstarfi við sjómenn og útgerðir svo hægt sé að mæta öllum þeim kröfum sem gerðar eru þegar öryggi sjófarenda er annars vegar. Gísli segir ekki síður mikilvægt að smáforritið sé eitthvað sem sjómenn vilji nota og því mikilvægur liður að þróa eitthvað sem býður þægilegt notendaviðmót.

Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í öryggisstjórnun.
Gísli Níls Einarsson, sérfræðingur í öryggisstjórnun.

Síðast á föstudag náðist samkomulag við Samherja um að átta skip félagsins myndu taka þátt í verkefninu en fyrir eru Vísir, Skinney-Þinganes, Gjögur og Síldarvinnslan í því. „Nú þegar erum við með 16 skip og á þriðja hundrað sjómenn sem taka þátt í prófunum. Með Samherja eru þetta 24 skip og á fjórða hundrað sjómanna. Samherji hefur verið mjög framsækinn í öryggismálum í fleiri ár og mikil viðurkenning fyrir okkur að fyrirtækið tekur þátt í þessu með okkur,“ segir Gísli Níls.

Hann segir nú unnið að því að safna fjárhagslegum bakhjörlum til að þróa kerfið áfram . Kerfinu hafi verið mjög vel tekið og sífellt fleiri að bætast í hópinn, en enn er nokkuð í land til að takist að ljúka fjármögnun.

Nánar er fjallað um Ölduna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »