Sýnir seigluna í Úkraínumönnum

Tinna Gilbertsdóttir, hjá Iceland Seafood, segir það hafa gengið ótrúlega …
Tinna Gilbertsdóttir, hjá Iceland Seafood, segir það hafa gengið ótrúlega smurt að selja afurðir til Úkraínu þrátt fyrir stríðsátökin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tinna Gilbertsdóttir hefur verið sölustjóri frosinna afurða hjá Iceland Seafood í rúman áratug. Fjölmargar áskoranir fylgja starfinu og fækkaði þeim ekki þegar ólöglegt landvinningastríð Rússa hófst í Úrkaínu fyrir ári síðan.

„Við erum alla daga að kaupa og selja uppsjávar- og sjófrystiafurðir út um allan heim og það er mikið magn sem við erum að ryðja á undan okkur. Við erum alltaf með alla anga úti,“ segir hún.

Rætt er við Tinnu um stöðuna á mörkuðum í blaði 200 mílna.

Austur-Evrópa er mikilvægt markaðssvæði fyrir afurðir Iceland Seafood. Tinna segir að í gegnum tíðina hafi þetta verið stór markaður, sér í lagi fyrir uppsjávarafurðir, og Úkraína er þar stærsta landið eftir að það lokaðist fyrir innflutning íslenskra sjávarafurða til Rússlands. En hömlur hafa verið á viðskiptum við Rússland frá árinu 2014, eftir innlimun Krímskaga. Eftir að Rússar réðust svo inn í febrúar í fyrra hafa áskoranirnar aukist mikið.

Innrás Rússlands í Úkraínu hefur haft margþættar afleiðingar fyrir fólkið …
Innrás Rússlands í Úkraínu hefur haft margþættar afleiðingar fyrir fólkið sem þar býr sem og heimshagkerfið. AFP/Dimitar Dilkoff

„Við töldum að með þessu stríði sem braust út í fyrra myndi þetta meira og minna bara lokast. Við vorum mjög svartsýn á hvernig þetta yrði, en þetta er búið að ganga ótrúlega smurt fyrir sig. Það sýnir kannski svolítið fram á seigluna í Úkraínumönnum sem þjóð að þeir ætla bara að halda áfram.“ Tinna segir svo að það hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum að koma vörum til landsins.

„Við erum að vinna mjög þétt með úkraínskum kaupendum, sem eru með vinnslur,“ og bætir við að reynt hafi mikið á aðfangakeðjustjórnun og geymslupláss, færri trukkar fara inn í landið í einu og það þarf að skipuleggja sig vel með kaupendunum.

„Við þurfum stöðugt að endurmeta stöðuna hverju sinni eftir því hvernig ástandið er. Við erum að selja á mismunandi svæði í Úkraínu og þau eru mismunandi stríðshrjáð. Það eru einhverjir af okkar kaupendum á svæðum sem eru mjög illa farin, en þetta hefur samt einhvern veginn gengið ótrúlega smurt.“

Lesa má viðtalið við Tinnu í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »