„Plastið er ekki nógu sterkt“

Skrokkur nýs báts Stakkavíkur verður úr stáli, en flestir nýir …
Skrokkur nýs báts Stakkavíkur verður úr stáli, en flestir nýir bátar í þessum stærðarflokki eru úr plasti. Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, segir bátinn verða sterkbyggðan og búinn öllum nýjustu tækjum. Samsett mynd

„Það hefur sýnt sig að plastið er ekki nógu sterkt og viðgerðar- og viðhaldsþörf plastbátanna meiri en reiknað var með,“ segir Þráinn Jónsson, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, í viðtali í blaði 200 mílna.

Þráinn var staddur í Tyrklandi þegar blaðamaður náði af honum tali og var hann á leið heim til Íslands eftir stífa fundalotu með samstarfsaðilum í Tyrklandi, þar er verið að smíða skrokkinn á nýjum bát fyrir Stakkavík. Bátar af þeirri stærð sem Stakkavík hefur pantað eru í dag nær eingöngu smíðaðir úr plasti og segir Þráinn að því fylgi verulegir kostir að nota stál í staðinn. „Með því að smíða skrokkinn úr stáli erum við með bát sem er einfaldlega í allt öðrum gæðaflokki,“ útskýrir Þráinn

Þó skrokkurinn sé smíðaður í Tyrklandi er það Skipasmíðastöð Njarðvíkur sem mun sjá um að fullklára bátinn.

„Báturinn er lengstur 13,68 metrar og breiðastur 5,6 metrar og verður skrokkurinn fluttur með skipi til Íslands. Þar tökum við til við lokafráganginn og komum t.d. fyrir öllum vélbúnaði og vinnslutækjum; spilbúnaði og björgunarbúnaði, og látum votta haffærni bátsins áður en hann er afhentur kaupanda,“ segir Þráinn.

Viðtalið við Þráin má lesa í 200 mílum, sérblaði Morgunblaðsins um sjávarútveg.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 426,21 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 469,26 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 256,54 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 248,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 129,45 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 131,21 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 260,28 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.5.24 Gulltindur ST 74 Handfæri
Þorskur 782 kg
Samtals 782 kg
15.5.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 103 kg
Samtals 847 kg
15.5.24 Annetta ÍS 131 Handfæri
Þorskur 167 kg
Samtals 167 kg
15.5.24 Gunnþór ÞH 75 Grásleppunet
Grásleppa 1.218 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 9 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.280 kg
15.5.24 Sveinbjörg ÁR 49 Handfæri
Þorskur 245 kg
Ufsi 10 kg
Karfi 1 kg
Samtals 256 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 426,21 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 469,26 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 256,54 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 248,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 129,45 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 131,21 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 260,28 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.5.24 Gulltindur ST 74 Handfæri
Þorskur 782 kg
Samtals 782 kg
15.5.24 Sigrún Hrönn ÞH 36 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 103 kg
Samtals 847 kg
15.5.24 Annetta ÍS 131 Handfæri
Þorskur 167 kg
Samtals 167 kg
15.5.24 Gunnþór ÞH 75 Grásleppunet
Grásleppa 1.218 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 9 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.280 kg
15.5.24 Sveinbjörg ÁR 49 Handfæri
Þorskur 245 kg
Ufsi 10 kg
Karfi 1 kg
Samtals 256 kg

Skoða allar landanir »