Sigldu á metanóli með hefðbundinni brunavél

Germanica farþegaferjan siglir knúin grænu metanóli framleiddu af CRI.
Germanica farþegaferjan siglir knúin grænu metanóli framleiddu af CRI. Ljósmynd/Aðsend

Farþega- og bílferjan Stena Germanica, í eigu sænska skipafélagsins Stena Line, sigldi í lok júní ferð sína á milli Gautaborgar í Svíþjóð og Kílar í Þýskalandi, knúin vistvænu metanóli. 

Var það í fyrsta sinn sem farþega- og bílferja búin hefðbundnum brunavélum sigldi knúin metanóli. 

Germanica-ferjan er 240 metra löng, ber 1.300 farþega og 300 bíla. Hún gengur á fjórum aðalvélum sem var breytt árið 2015, þannig að þær geta gengið bæði á metanóli og dísil.

Framleitt úr útblæstri

Metanóleldsneytið sem notast var við í þessari fyrstu siglingu sinnar tegundar var framleitt af íslenska fyrirtækinu Carbon Recycling International (CRI) og samstarfsaðilum þess í Svíþjóð úr endurunnum útblæstri frá stáliðjuveri SSAB í Luleå í Norður-Svíþjóð.

Skipstjórnarmenn og fulltrúar Stena Line voru viðstaddir þegar grænu metanóli …
Skipstjórnarmenn og fulltrúar Stena Line voru viðstaddir þegar grænu metanóli frá CRI var dælt á Stena Germanica-ferjuna í höfninni í Gautaborg. Ljósmynd/Aðsend

Eldsneytið var framleitt með búnaði sem er þróaður, hannaður, uppsettur og rekinn af starfsfólki CRI. Var verkefnið, From residual Steel gases to Methanol sem lauk með siglingu Germanica á metanóli, styrkt af Evrópusambandinu og ætlað að sýna fram á möguleika á notkun gass úr stáliðjuofnum sem vistvæns eldsneytis. Alls lagði Evrópusambandið 1,7 milljarða króna til verkefnisins. 

Í dag sigla um tuttugu flutninga- og farþegaskip knúin metanóli ásamt því að mörg skip eru í smíðum og gaf Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) á síðasta ári út nýja staðla um notkun metanóls sem skipaeldsneytis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Skúli ST 75 Grásleppunet
Grásleppa 2.733 kg
Þorskur 351 kg
Skarkoli 72 kg
Steinbítur 35 kg
Samtals 3.191 kg
26.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 1.273 kg
Þorskur 159 kg
Skarkoli 92 kg
Ýsa 21 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.549 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Skúli ST 75 Grásleppunet
Grásleppa 2.733 kg
Þorskur 351 kg
Skarkoli 72 kg
Steinbítur 35 kg
Samtals 3.191 kg
26.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 1.273 kg
Þorskur 159 kg
Skarkoli 92 kg
Ýsa 21 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.549 kg

Skoða allar landanir »