Stofnfiskur verður Benchmark Genetics Iceland

Jónas Jónasson, framkvæmdastjóri Benchmark Genetics Iceland, segir það skipta viðskiptavini …
Jónas Jónasson, framkvæmdastjóri Benchmark Genetics Iceland, segir það skipta viðskiptavini miklu máli að laxastofn fyrirtæksins heiti áfram Stofnfiskur. Ljósmynd/Benchmark Genetics Iceland

Stofnfiskur hf. hefur breytt nafni sínu og fer starfsemin nú fram undir merkjum Benchmark Genetics Iceland hf. Fram kemur í fréttatilkynningu að nafnabreytingin sé liður í því að sameina vörumerki innan móðurfélagsins Benchmark Holding plc group, en kennitala félagsins, skipulag þess og eignarhald óbreytt.

Þá segir að heitið Stofnfiskur verður áfram notað fyrir laxastofn fyrirtækisins svo og kynbótaverkefni þess á laxi sem starfrækt er á Íslandi, en Benchmark Genetics Iceland er framleiðandi á kynbættum laxahrognum til laxeldisiðnaðarins á Íslandi, í Evrópu og Síle. Það skiptir miklu máli fyrir viðskiptavini félagsins að laxastofninn haldi óbreyttu nafni, segir Jónas Jónasson, framkvæmdastjóri Benchmark Genetics Iceland.

Klakstöð og Hrognahús í Vogavík.
Klakstöð og Hrognahús í Vogavík. Ljósmynd/Benchmark Genetics Iceland

Stefnt að uppbyggingu

Fram undan er vaxtarskeið hjá fyrirtækinu og er stefnt að miklum fjárfestingum í uppbyggingu starfsemi félagsins á Íslandi. Þá er verið að byggja nýtt hrognahús við stöð félagsins í Vogavík sem verður tilbúin seinna á þessu ári auk þess sem unnið er að nýrri seiðastöð á sama svæði.

Fyrirtækið var stofnað 1991 og fer starfsemi fyrirtækisins fram á Suðvesturlandi, klakeldisstöðvar við Kalmanstjörn sunnan við Hafnir og í Vogum þar sem einnig hrognaframleiðsla fyrirtækisins fer fram. Seiðastöðin er staðsett í Kollafirði. Fyrirtækið framleiðir einnig hrognkelsaseiði í stöð sinni í Höfnum, sem eru notuð til að halda laxalús niðri í laxeldi í sjó.

„Núna erum við spennt að klára framkvæmdir við nýtt hrognahús sem verður tilbúið í júní á þessu ári. Stöðin verður útbúin með nýjustu tækni  og mun gera okkur kleift að auka framleiðsluna allan ársins hring á hrognum til viðskiptavini okkar um allan heim. Þar á meðal nýju laxeldisfyrirtækin í landeldi sem er í mikilli sókn í heiminum,“ segir Jónas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »