Bóndinn á Arnarstapa undrandi yfir humrinum

Klement Sigurðsson skipstóri á Ingu P hefur að undanförnu stundað …
Klement Sigurðsson skipstóri á Ingu P hefur að undanförnu stundað humarveiðar með gildrum. 120 kíló fengust undan Arnarstapa. mbl.is/Alfons Finnsson

Tilraunaveiðar með humargildrur á Ingu P SH ganga vonum framar og er auðsjáanlega humar víða í Breiðafirði. Nokkuð óvænt tókst að ná í 120 kíló undan Arnarstapa, en þar hafa slíkar veiðar ekki verið stundaðar áður.

Fyrst voru gildrurnar í tilraunaveiðunum lagðar ellefu mílur vestur af Öndverðarnesi og var afli með ágætum en veður hamlaði þó veiðum. Í síðustu viku voru svo gildrurnar færðar í svokallað Jökuldýpi sem er þekkt humarsvæði, en áður fyrr voru humartogskip þar að veiðum.

Ein trossa var þó lögð tólf mílur suður af Arnarstapa þar sem ekki hefur verið veitt áður og kom það mönnum á óvart að þar var góður afli af vænum humri. Kom Inga P að loknum veiðum með 120 kíló til hafnar. Aflanum var landað á Arnarstapa stutt frá veiðislóð og er þetta í fyrsta sinn sem humri er landað þar, að sögn Guðmundar Ívarssonar hafnarvarðar.

Þórgeir Högnason bóndi á Arnarstapa átti ekki orð yfir því að humar fengist rétt við kartöflugarð sinn og var heldur betur undrandi yfir að sjá svona fallegan humar.

Þórgeir Högnason bóndi á Arnarstapa virðir aflann ásamt Klemens Sigurðsyndi …
Þórgeir Högnason bóndi á Arnarstapa virðir aflann ásamt Klemens Sigurðsyndi skipstjóra á Ingu P SH. mbl.is/Alfons Finnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »