„Það gefur veika von um skárri tíð“

Humarstofninn stendur höllum fæti og segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfiskvinnslu …
Humarstofninn stendur höllum fæti og segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfiskvinnslu hjá Vinnslustöðinni, að einhver von sé um að nýliðun sé að aukast en að frekari gögn þurfi til þess að draga ályktanir um framtíð stofnsins. Ljósmynd/VSV

Fyrsta humri ársins hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum var landað úr Brynjólfi VE föstudaginn 8. maí og er Drangavík VE einnig á humarveiðum. Bátarnir hafa verið í Skeiðarárdýpi fyrstu daga vertíðarinnar, að því er fram kemur í færslu á vef Vinnslustöðvarinnar.

Þar segir að humarvertíðin sé tíðindalítil eins og gera mátti ráð fyrir vegna veikrar stöðu humarstofnsins og ráðlagði Hafrannsóknastofnun útgáfu lágmarkskvóta í vísindaskyni til að fylgjast með heilsufari stofnsins. Af gögnum Hafrannsóknastofnunar að ráða sést að nýliðun skortir í humarstofninum. Á vef Vinnslustöðvarinnar er fullyrt að „það tengist hvorki veiðum né veiðarfærum heldur einhverjum aðstæðum í lífríki sjávarins“.

Ekkert af humri við Eyjar

„Þorlákshafnarmenn og Hornfirðingar byrja yfirleitt á undan okkur Eyjamönnum í humrinum, í mars eða apríl. Vertíðin hefst á austursvæðinu, frá Hornafjarðardýpi að Skeiðarárdýpi og færist svo vestar þegar líður á vorið og fram á sumar,“ útskýrir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfiskvinnslu hjá Vinnslustöðinni, í færslunni.

„Undanfarin ár hefur mest veiðst við Eldey og humar er veiddur líka í Jökuldýpi en þar er nú lokað vegna verndaraðgerða. Lónsdýpi er sömuleiðis lokað og svæði á Breiðamerkurdýpi. Hér við Eyjar hefur sama og ekkert veiðst af humri í mörg ár.“

Humarinn er eftirsóttur, en dregið hefur úr eftirspurn í Evrópu …
Humarinn er eftirsóttur, en dregið hefur úr eftirspurn í Evrópu vegna faraldursins. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sverrir segir nýliðun skorta í stofnin. „Eingöngu hefur veiðst stór humar undanfarin ár en nú kemur fyrir að smár humar fáist líka. Það gefur veika von um skárri tíð en við þurfum fleiri og skýrari vísbendingar og mun meiri gögn til að byggja á og draga af ályktanir.“

Vinnslustöðin selur heilfrystan humar til Spánar og humarhala á markaði víða á meginlandi Evrópu, segir hann og bendir á að um þessar mundir eru veitingahús víða lokuð vegna kórónuveirunnar og engin spurn eftir humri. „Við veiðum því og framleiðum eftir hendinni og reynum að spila úr þeim markaðsfærum sem gefast þegar faraldrinum linnir og lífið færist í fyrra horf, þar á meðal í veitingahúsarekstri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »