Sterk innkoma af bekknum

Tryggvi Snær Hlinason kom sterkur inn af bekknum.
Tryggvi Snær Hlinason kom sterkur inn af bekknum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bilbao mátti þola skell, 97:80, er liðið mætti Palencia á heimavelli í efstu deild Spánar í körfubolta í kvöld. 

Tryggva Snæ Hlinasyni verður ekki kennt um tapið því hann kom mjög sterkur af bekknum og skoraði 13 stig og tók 6 fráköst fyrir Bilbao á 21 mínútu. Var hann næst stigahæstur í sínu liði.

Bilbao er í ellefta sæti með 26 stig eftir fjögur töp í röð.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert