Ég er mikill Pavelsmaður

Steinþór Helgi Arnsteinsson.
Steinþór Helgi Arnsteinsson. mbl.is/Binni

„Ég er hingað kominn bara fyrir stemninguna og mér er í raun alveg sama í hvora áttina leikurinn fer,“ sagði athafnamaðurinn Steinþór Helgi Arnsteinsson, í samtali við mbl.is fyrir utan Hlíðarenda í dag.

„Ég er reyndar mikill Pavels maður og ef við horfum á þennan leik í sögulegu samhengi þá er skemmtilegra ef Tindastóll vinnur, ég neita því ekki.

Köllum bara skóflu skóflu og ég hallast meira í þá átt. Vonandi endar þetta með sigri Tindastóls,“ sagði Steinþór Helgi.

Steinþór Helgi er mikill íþróttaáhugamaður og er ánægður með stemninguna sem hefur myndast í kringum úrslitakeppnirnar hér á landi.

„Ég mætti á nokkra leiki í einvíginu í fyrra og þá var stemningin svipuð sem er bara frábært. Þetta var ekki svona, þegar að ég var yngri, og ég dýrka hversu mikil stemning er komin í kringum þessar úrslitakeppnir og ég er algjörlega að soga þetta allt saman inn,“ bætti Steinþór Helgi við í samtali við mbl.is.

Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls.
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls. mbl.is/Hákon Pálsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert