Þjóðverjar leika um fimmta sætið

Viola Leuchter skoraði sex mörk fyrir Þýskaland í dag.
Viola Leuchter skoraði sex mörk fyrir Þýskaland í dag. AFP/Henning Bagger

Þýskaland hafði betur gegn Tékklandi, 32:26, þegar liðin áttust við í leik um 5. til 8. sæti á HM 2023 í handknattleik kvenna í Herning í Danmörku í dag.

Bæði lið féllu úr leik í fjórðungsúrslitum og skar leikur dagsins úr um hvort þeirra myndi leika um fimmta sæti og hvort um sjöunda sæti.

Þjóðverjar hófu leikinn frábærlega og komust fimm mörkum yfir, 7:2, snemma leiks.

Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn vann Tékkland sig stöðugt betur inn í leikinn og náði að minnka muninn niður í eitt mark, 13:12, áður en Þýskaland skoraði síðasta mark hálfleiksins og var staðan í hálfleik 14:12.

Þjóðverjar hófu síðari hálfleikinn með viðlíka krafti og komust fljótlega sex mörkum yfir, 18:12.

Upp frá því áttu Tékkar erfitt uppdráttar og komust ekki nær Þjóðverjum en fjórum mörkum.

Þýskaland náði mest átta marka forystu, 32:24, áður en Tékkland skoraði tvö síðustu mörk leiksins og niðurstaðan var sex marka sigur Þjóðverja.

Þar með er ljóst að kvennalandslið Þýskalands nær sínum besta árangri á Evrópumóti frá árinu 2007.

Viola Leuchter var markahæst í liði Þýskalands með sex mörk.

Marketa Jerabkova skoraði sömuleiðis sex mörk fyrir Tékkland.

Þýskaland mætir annaðhvort Svartfjallalandi eða Hollandi í leiknum um fimmta sætið og sömu sögu er að segja af Tékklandi hvað sjöunda sætið varðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert