Leo Anthony Speight og Guðmundur Flóki Sigurjónsson unnu báðir til gullverðlauna á Evrópumóti smáþjóða í bardagaíþróttinni taekwondo í Tallinn í Eistlandi.
Leo vann í -68 kílógramma flokki fullorðinna í gær á meðan Guðmundur Flóki Sigurjónsson bar sigur úr býtum í sama þyngdarflokki í unglingaflokki í dag. Eru þeir báðir ríkjandi Norðurlandameistarar.
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir og Jón Þór Sanne fóru með til Eistlands. Ingibjörg Erla gat ekki keppt vegna meiðsla á meðan Jón Þór komst ekki í úrslit.