Courtois kemst ekki í lið Real

Thibaut Courtois fyrir leikinn gegn Cadiz um helgina
Thibaut Courtois fyrir leikinn gegn Cadiz um helgina AFP/OSCAR DEL POZO

Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segir að Andriy Lunin haldi sæti sínu í markinu þegar Real tekur á móti Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.

Thibaut Courtois sneri aftur í byrjunarlið Madridarliðsins eftir krossbandslit um helgina í 3:0 sigri Real á Cadiz en Ancelotti segir Lunin vera á undan Belganum í röðinni.

„Andriy Lunin spilar. Eftir svona alvarleg meiðsli leikmanns er ekki hægt að breyta áætlunum vegna eins leik. Thibaut þarf að tíma til að komast aftur í fyrra form“.

Úkraínumaðurinn Lunin hefur sprungið út í marki Real á tímabilinu og spilað virkilega vel. Staðan í einvígi Real og Bayern er 2:2 eftir fyrri leikinn í Þýskalandi.

Andriy Lunin í leik með Real Madrid
Andriy Lunin í leik með Real Madrid AFP/OSCAR DEL POZO
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert