Fyrrverandi leikmaður Þróttar skoraði gegn Íslendingaliðinu

Tanya Boychuk í leik á síðasta tímabili.
Tanya Boychuk í leik á síðasta tímabili. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnukonan Tanya Boychuk skoraði sigurmark Vittsjö gegn Íslendingaliði Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í dag, 1:0. 

Tanya fór frá Þrótti í Vitt­sjö fyrir tímabilið í ár og skoraði sigurmark liðins á síðustu mínútu leiksins í dag. Hún var mikilvægur partur af liðinu á síðasta tímabili sem lenti í þriðja sæti í Bestu deild kvenna.

Katla Maria Þórðardóttir, Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Bergþóra Sól Ásmundsdóttir voru allar í byrjunarliði Örebro en liðið er án stiga eftir fjóra leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert